5.000 perur á nýju geitinni

Nýja jólageitin ljómar.
Nýja jólageitin ljómar.

Sænska jólageitin hjá IKEA í Garðabæ fékk heldur dapurleg örlög er skemmdarvargar kveiktu í henni. Nú er búið að setja aðra geit í hennar stað og sú er enn stæðilegri en sú fyrri.

Margir hafa lagt hönd á plóginn í vikunni svo að reisa mætti nýja geit sem fyrst og það má með sanni segja að margar hendur vinni létt verk því geitin er tilbúin og er þar að auki skreytt ljósum frá toppi til táar, segir í frétt frá IKEA.

 Það dugðu ekki færri en 5.000 perur til verksins og nýja geitin er því svo sannarlega ljómandi flott.  „Það er von starfsfólks IKEA að nýja geitin fái að standa í friði að þessu sinni og leggja þannig sitt af mörkum til jólagleðinnar sem er í hávegum höfð í IKEA á þessum árstíma,“ segir í frétt IKEA.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert