Lögreglan á Akureyri stöðvaði för manns innanbæjar í gærkvöldi sem reyndist vera bæði ölvaður og undir áhrifum fíkniefna undir stýri. Ekki nóg með það því hann var ekki með ökuréttindi, bifreiðin númeralaus og ótryggð.
Að sögn lögreglu var tekið blóðsýni úr manninum og honum síðan sleppt.