HR býður upp á nám í hagfræði

Þóranna Jónsdóttir, forseti viðskiptadeildar HR.
Þóranna Jónsdóttir, forseti viðskiptadeildar HR. Ljósmynd/Kristinn

Háskólinn í Reykjavík mun hefja kennslu á nýrri námsbraut í hagfræði frá og með næsta hausti. Þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir í námið.

Í fyrstu verður boðið upp á nám í hagfræði til BSc gráðu en í því námi er lögð áhersla á að nemendur öðlist sterkan fræðilegan grunn í hagfræði, samhliða því að þeir fái haldgóða og hagnýta færni í að beita sinni þekkingu. Námið byggir á þeirri sterku hefð Háskólans í Reykjavík að þjálfa nemendur í að vinna í hópum, samskiptahæfni og þátttöku í þverfaglegu samstarfi. Til að undirbúa nemendur sem best fyrir framhaldsnám og störf í alþjóðlegu umhverfi er talsverður hluti námsins á ensku. Nám í hagfræði við viðskiptadeild HR er þriggja ára, 180 ECTS-nám, að því er segir í tilkynningu frá skólanum.

Meðal kennara verða dr. Friðrik Már Baldursson, prófessor; dr. Katrín Ólafsdóttir, lektor, dr. Axel Hall, lektor og fleiri sérfræðingar frá Háskólanum í Reykjavík og íslensku atvinnulífi. Tvær námsleiðir verða í boði: BSc-gráða í hagfræði og fjármálum og BSc-gráða í hagfræði ogstjórnun, að því er segir í tilkynningu frá háskólanum.

„Það er þörf á aukinni þekkingu á sviði hagfræði í atvinnulífinu,“ er haft eftir Þórönnu Jónsdóttur, forseta viðskiptadeildar HR, í tilkynningunni.

„Deildin hefur á að skipa mjög færum sérfræðingum á sviði hagfræði sem hafa áratuga reynslu af kennslu, rannsóknum og störfum fyrir atvinnulíf og samfélag. Stofnun nýrrar námsbrautar í hagfræði hefur verið í undirbúningi í tvö ár og er eðlilegt framhald af uppbyggingu kennslu í viðskiptatengdum greinum við háskólann,“ segir hún ennfremur.

Heimasíða Háskólans í Reykjavík

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka