Lögreglan á Akureyri stöðvaði för ökumanns í Víkurskarði í gærkvöldi en sá reyndist undir áhrifum áfengis og án ökuréttinda.
Að öðru leyti var næturvaktin róleg hjá lögreglunni á Akureyri. Ekkert fréttnæmt gerðist á næturvaktinni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.