2.590 keppast um 1.400 pláss í HR

Mikil fjölgun er áberandi í erlendum umsóknum, og m.a. bárust …
Mikil fjölgun er áberandi í erlendum umsóknum, og m.a. bárust um 50% fleiri umsóknir, um meistaranám í orkuverkfræði og sjálfbærum orkuvísindum við Íslenska orkuháskólann, en í fyrra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Alls bárust 2.590 umsóknir um nám við Háskólann í Reykjavík á næsta skólaári, en umsóknarfrestur rann út um síðustu helgi. Reiknað er með að um 1.400 umsækjendur fái skólavist við háskólann í haust. Fjórtán hundruð níutíu og ein umsókn barst um grunnnám, 803 um meistara- og doktorsnám og 296 umsóknir bárust um undirbúningsnám fyrir háskóla í frumgreinadeild.

Í fréttatilkynningu kemur fram að lagadeild bárust 167 umsóknir, 94 í grunnnám og 73 í framhaldsnám. Átta hundruð tuttugu og níu sóttu um nám í viðskiptadeild, 486 í grunnnám og 343 í framhaldsnám. Fjörutíu umsóknir bárust um nám í hagfræði sem verður kennd í fyrsta skipti við viðskiptadeild á næsta ári. Tölvunarfræðideild bárust 516 umsóknir, 449 í grunnnám og 67 í framhaldsnám. Í tækni- og verkfræðideild bárust 782 umsóknir, 462 í grunnnám og 320 í framhaldsnám.

Mikil fjölgun er áberandi í erlendum umsóknum, og m.a. bárust um 50% fleiri umsóknir, um meistaranám í orkuverkfræði og sjálfbærum orkuvísindum við Íslenska orkuháskólann, en í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka