Þorsteinn upplýsingafulltrúi Landsbjargar

Þorsteinn G. Gunnarsson.
Þorsteinn G. Gunnarsson.

Þorsteinn G. Gunnarsson hefur verið ráðinn upplýsinga- og kynningarfulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og hann hefur þegar hafið störf hjá félaginu.

Auk samskipta við fjölmiðla mun Þorsteinn vinna að margvíslegum verkefnum fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg sem lúta að málefnum félagsins og útgáfumálum.

Í fréttatilkynningu kemur fram að Þorsteinn hefur víðtæka reynslu af almannatengslum og kynningarmálum eftir að hafa starfað sem ráðgjafi í almannatengslum í 18 ár, lengst af hjá KOM almannatengslum. Þar áður starfaði hann sem blaðamaður, ritstjóri og dagskrárgerðarmaður.

Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, sem áður var upplýsingafulltrúi Landsbjargar og starfaði með félaginu í tæpan áratug, var í maí ráðin upplýsingafulltrúi Orkuveitu Reykjavíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert