Umferðin um Vesturlandsveg og Hvalfjarðargöng hefur aukist mikið síðustu árin og hefur aldrei verið meiri.
Umferðin er hæg á álagstímum enda segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri á Akranesi, í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag, að vegurinn anni ekki umferðinni. Þá skapist hætta vegna slæmra akstursskilyrða.