„Ekki stoppa og ekki gefast upp,“ segir Brynjar Karl Birgisson legómeistari um Titanic-líkan sitt sem brotnaði og hann hyggst endurbyggja. Hann hlakkar til að byggja það að nýju fyrir framan sýningargesti í Hamborg á sýningunni Floating Bricks 18. til 19. mars næstkomandi. Verið var að flytja skipið á Titanic-safnið í Branson í Bandaríkjunum þegar það brotnaði.
Þegar forsvarsmenn sýningarinnar fréttu af því að líkanið hafi brotnað óskuðu þeir eftir því að hann endurbyggði það fyrir framan sýningargesti. „Ég hlakka mjög, mjög mikið til,“ segir hann spurður hvort hann hlakki til. Hann bætir við: „Það verður skemmtilegt að sjá fólk meðan ég verð að byggja. Þá get ég heilsað því.“
Framhliðin á sex og hálfs metra líkaninu brotnaði og því verður að endurbyggja það. Það verður endurbætt og styrkt að innan og verður því enn betra, að sögn Brynjars Karls. Hann viðurkennir að hann sé örlítið kvíðinn yfir skemmdunum en sérstaklega vegna þess að hann hefur ekki séð þær með eigin augum heldur einungis myndir af því. Skipið er nú í Noregi.
Afi hans, Lúðvík B. Ögmundsson, útbjó sérstakar teikningar fyrir Brynjar þannig að hann gæti smíðað skipið úr kubbum. Hann er að finna nýjar teikningar með endurbótum svo hægt sé að styrkja skipið. Hann er nú í Noregi til að reyna að tryggja að skipið verði ekki fyrir frekari skemmdum á leiðinni til Þýskalands.
Skipið var á leið yfir Atlantshafið og brotnaði á svipuðum stað og hið raunverulega Titanic. „Mér finnst það mjög skrýtið. Skrýtið en líka svolítið fyndið,“ segir hann og bætir við: „Ég vil ekki vera of leiður því það er verra fyrir mann.“