Óska eftir umsögnum vegna frumvarpsdraga

Erlendir ferðamenn við Gullfoss.
Erlendir ferðamenn við Gullfoss. mbl.is/Ómar Óskarsson

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.

Kemur þetta fram á heimasíðu ráðuneytisins. Megniefni frumvarpsins felur í sér að gerðar eru breytingar á markmiðum og hlutverki Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða þannig að hlutverk hans verði eftirleiðis að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í umsjón eða eigu sveitarfélaga og einkaaðila. 

Ferðamannastaðir í opinberri eigu falla utan gildissviðs laganna sem og staðir sem eru á náttúruverndarsvæðum, sem ekki eru í eigu eða umsjón sveitarfélaga eða einkaaðila. 

Frestur til að skila umsóknum um frumvarpsdrögin er til 23. mars næstkomandi. Umsagnir óskast sendar á netfangið postur@anr.is eða í bréfpósti á: Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert