Lögreglan á Suðurnesjum fann meint amfetamín og kannabisefni við húsleit í húsnæði í umdæmi sínu í fyrrinótt.
Fram kemur í fréttatilkynningu að húsráðandi hefði játað eign sína á efnunum og verið handtekinn í kjölfarið. Maðurinn var látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Þá reyndist ökumaður, sem lögregla stöðvaði vegna gruns um fíkniefnaakstur, hafa kannabis í fórum sínum. Var hann einnig handtekinn og færður á lögreglustöð.