Diljá Ýr Zomers og stöllur í OH Leuven töpuðu 1:0 gegn Anderlecht í toppbaráttunni í belgísku A-deildinni í dag.
Diljá var í byrjunarliði en leikurinn var markalaus þar til á 90. mínútu þegar Anderlecht komst yfir. Liðið er nú með þriggja stiga forskot á Leuven í efri hluta deildarinnar.
Enn eru þrjár umferðir eftir en þetta er dýrt tap og annað svekkjandi tap liðsins á stuttum tíma en á dögunum tapaði Leuven gegn Club Brugge í bikarúrslitum.