„Við erum að yfirgefa vettvang,“ segir Oddur Hallgrímsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. Slökkviliðið vann að því í morgun að moka burt rústum af húsinu sem brann við Reykjabraut í Mosfellsbæ í nótt.
Slökkviliðinu barst tilkynning um eld í húsinu laust fyrir klukkan þrjú í nótt. Fimm manna fjölskylda bjargaði sér út í gegnum svefnherbergisglugga en húsið er talið ónýtt.
Oddur segir að slökkvilið hafi fjarlægt það sem helst gat fokið. Mikill vindur var á svæðinu og slökkviliðsmenn komu í morgun í veg fyrir að stórar járnplötur fykju.
„Húsið er algjörlega horfið,“ segir Oddur þegar hann er spurður um stöðuna á húsinu. Lögregla mun í framhaldinu rannsaka eldsupptök.