Búið er að ræða við um 10 þeirra sem enn teljast á barnsaldri og sem dvalið hafa á vistheimili þar sem karlmaður starfaði, sem nú situr í gæsluvarðhaldi grunaður um kynferðisbrot gegn sem skjólstæðingi sem hann var stuðningsfulltrúi fyrir. Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Barnaverndar Reykjavíkur, segir ekkert benda til þess að þau börn hafi orðið fyrir ofbeldi.
Hún segir engin fleiri mál tengd manninum hafa borist Barnavernd frá því að fréttir bárust í vikubyrjun af því að starfsmaður skammtímavistheimilis, sem starfað hefur hjá borginni í áratugi, sé grunaður um brot gegn börnum. „Þau hafa ekki komið inn á okkar borð, en við erum bara með börnin á okkar snærum og við höfum ekki fengið neinar tilkynningar vegna barna,“ segir Halldóra.
Barnavernd hefur sent öllum fullorðnum einstaklingum sem hafa dvalið á vistheimilum þar sem maðurinn hefur starfað bréf, þar sem þeim er boðið viðtal í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Eru það rúmlega 200 manns og staðfestir Ragna Björg Guðbrandsdóttir, verkefnisstjóri Bjarkahlíðar að þangað séu farnar að berast fyrirspurnir vegna málsins.
Einnig hefur Barnavernd samband í gegnum forráðamenn við þá sem enn teljast á barnsaldri, þ.e. hafa ekki náð 18 ára aldri, og eru það rúmlega 30 einstaklingar.
„Við erum byrjuð að tala við öll börn sem voru í þessum hópi,“ segir Halldóra og áætlar að búið sé að tala við á bilinu 10-12 börn af listanum. „Það hefur ekkert komið fram ennþá sem bendir til þess að þau hafi orðið fyrir ofbeldi.“
Fjölmiðlar hafa í vikunni greint frá því að Barnavernd Reykjavíkur hafi árin 2002 og 2008 verið tilkynnt um meint eldri kynferðisbrot starfsmannsins og hefur Halldóra sagst ekki hafa neinar upplýsingar um að stofnuninni hafi borist kvörtun.
„Ég geri ráð fyrir að fólk hafi hringt og mistökin séu okkar megin,“ segir hún og bætir við að ýmislegt hafi breyst í starfi Barnaverndar frá 2002. „Árið 2008 vorum við nýflutt í Borgartúnið og nýkomin í tengsl við símaverið. Síðan þá erum við komin með sérfræðing á símavakt og við höfum skerpt mjög mikið á á öllum verkferlum á þessum árum.“
Velt verði hins vegar við öllum steinum við til að athuga hvort rétt reynist að slíkar ábendingar hafi borist. „Nú erum við að reyna að ná til allra sem ef til vill eiga um sárt að binda. Við byrjum þar og svo speglum við okkur í framhaldinu varðandi þær úrbætur sem að við teljum að við verðum að gera til að svona ábendingar muni aldrei misfarast.“