„Við erum vön þessu og erum ekki mikið að kippa okkur upp við þetta. Mér var reyndar ekki alveg sama þegar sá stærsti kom í gær,“ segir Guðbjörg Henningsdóttir íbúi í Grímsey. Öflug skjálftahrina hefur verið Grímsey síðustu tvo sólarhringa. Við skjálftana sem voru yfir þrír að stærð heyrðust drunur og högg kom á húsið og ekki mikið af hlutum færðust úr stað.
Þrír jarðskjálftar sem mældust 3,5-3,6 stig urðu við Grímsey um klukkan átta í morgun og urðu tveir þeirra með aðeins fjögurra mínútna millibili. Síðustu tvo sólarhringana hafa yfir 1.100 skjálftar orðið á skjálftabeltinu við Grímsey og samtals hafa tíu þeirra verið yfir 3 af stærð.
Guðbjörg var með afmælisveislu í gær og voru því talsvert margir á heimili hennar þegar stór skjálfti kom. Hún segir alla hafa verið rólega yfir jarðskjálftunum bæði börn og fullorðna.
Íbúar í Grímsey hugsa greinilega vel um nágranna sína. Guðbjörg segir að haft hafi verið samband við þá sem búa einir og þeim boðin gisting ef þeir treystu sér ekki til þess að vera einir út af jarðskjálftunum. Þeir hafi afþakkað pent og eru ekki mikið að velta sér upp úr stöðunni.
Í morgun voru nokkrir skjálftar en Guðbjörg segist hafa sofið þá af sér. Hins vegar vaknaði maðurinn hennar upp við þá áður en hann hélt út á sjó í morgun.