Upptökin á eldvirku svæði

Myndin sýnir hafsbotnskort af upptakasvæði skjálftahrinunnar við Grímsey.
Myndin sýnir hafsbotnskort af upptakasvæði skjálftahrinunnar við Grímsey. Kort/Veðurstofa Íslands

Nyrsti hluti jarðskjálftahrinunnar norðan Grímseyjar hefur upptök við Nafirnar en þær eru eldvirkt svæði.

Þetta kemur fram í facebook-færslu Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Þar segir jafnframt að á Nöfunum megi sjá fjöll og hraun sem myndast hafa eftir ísöld.

„Skjálftahrinan við Grímsey, hófst við sunnanverðar Nafirnar, færðist síðan til suðausturs eftir stórum norðlægum siggengjum í Skjálfandadjúpi og síðan aftur í Nafirnar,“ segir í færslunni.

Á myndinni sem stofnunin birti má sjá hafsbotnskort af upptakasvæði skjálftahrinunnar við Grímsey. Þar eru yfirfarnir jarðskjálftar samkvæmt Skjálftalísu Veðurstofunnar í svörtu og skjálftar 2020-2022 í gráu, teiknaðir eftir stærð.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert