Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest framlengingu gæsluvarðhalds yfir Sigurði Kristinssyni sem handtekinn var við komuna til landsins frá Spáni í janúar, grunaður um aðild að fíkniefnainnflutningi í sendingu sem merkt var Skáksambandi Íslands.
Lögreglan fór fram á að varðhaldið yrði framlengt um fjórar vikur eða til 4. apríl og féllst héraðsdómur á það.
Sigurður kom til landsins fimmtudagskvöldið 25. janúar og var handtekinn við komuna. Þetta er í annað sinn sem varðhald yfir honum er framlengt.
Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn segir að góður gangur sé í rannsókn málsins.
Íslensk yfirvöld hafa sent þeim spænsku réttarbeiðni um að lögreglan hér á landi taki yfir rannsókn þess anga málsins sem teygir sig til Spánar þar sem það tengist m.a. Sunnu Elviru Þorkelsdóttur, eiginkonu Sigurðar. Hún er í farbanni vegna málsins og liggur alvarlega slösuð á sjúkrahúsi á Spáni, að sögn talsmanns hennar með varanlegan mænuskaða eftir fall. „Þetta er enn í vinnslu, það er enn stefnt að þessu,“ segir Grímur um stöðuna á réttarbeiðninni. Enn sé beðið niðurstöðu spænskra yfirvalda.
Réttarbeiðnin gengur út á það að íslenska lögreglan taki yfir rannsókn málsins vegna þess að það sé ekki í samræmi við mannréttindasáttmála að sömu atvik séu rannsökuð á tveimur stöðum í einu. Hins vegar þarf að gera samkomulag um það að rannsókn fari einungis fram á einum stað í tilvikum sem þessum.