Slökkviliðsmenn vinna nú að frágangi í Perlunni eftir að eldur kom upp í húsinu síðdegis í gær. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði er mikið verk eftir óunnið.
Tæknideild lögreglu og fulltrúar tryggingafélaga hófu rannsókn á brunanum þegar slökkvistarfi lauk um klukkan tvö í nótt. Talið er að eldsupptök megi rekja til iðnaðarmanna sem voru að störfum við tankinn.
Perlan verður ekki opnuð í dag vegna þess að það þarf að losa vatn og reykræsta.
Gunnar Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Perlu norðursins, segir að tjón á sýningum fyrirtæksins sem settar höfðu verið upp í Perlunni sé minna en óttast var í fyrstu.