„Við erum að ganga frá og tína saman tæki og svona,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu. Slökkvistarfi við Perluna lauk um klukkan tvö í nótt en slökkviliðið verður við frágang í dag.
„Við erum ekki í neinu slökkvistarfi, bara að safna saman okkar dóti,“ segir Jón Viðar. Hann segir að slökkvistarf í gær hafi gengið betur en búist var við í fyrstu en eldurinn kviknaði í klæðningu í heitavatnstanki við bygginguna síðdegis í gær.
„Þetta var orðið frekar mikið undir þessum útsýnispalli en við þurftum að rífa okkur þar niður til að komast niður á klæðningu sem var yfir tanknum,“ segir Jón Viðar. Hann bætir við að slökkvistarfið hafi reynt á en þrengsli hafi verið á þeim svæðum sem unnið var á og því tók talsverðan tíma að ráða niðurlögum eldsins.
Talið er að eldsupptök megi rekja til iðnaðarmanna sem voru að störfum við tankinn.
Gunnar Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Perlu norðursins, sagði í gær að tjón á sýningum fyrirtækisins sem settar höfðu verið upp í Perlunni væri minna en óttast var í fyrstu. Perlan verður ekki opnuð í dag þar sem þar þarf að reykræsta og losa vatn.