Eldurinn sem kviknaði í klæðingu í heitavatnstanki við Perluna á þriðjudag kom upp eftir að gat var brennt á tankinn með logsuðutæki.
Þetta er niðurstaða rannsóknar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á upptökum eldsins.
Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns voru iðnaðarmenn að gera við inngang í tankinn þegar eldurinn kviknaði.
Áður hafði komið fram að eldsupptökin mætti líklega rekja til vinnu iðnaðarmanna í Perlunni og í kvöldfréttum RÚV á miðvikudag kom fram að talið var að notkun logsuðutækis hafi komið þar við sögu.
Rannsókn lögreglunnar á eldsvoðanum er lokið og núna er málið í höndum tryggingafélaga.