Próflaus og í vímu undir stýri

mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan stöðvaði för bifreiðar í vesturborginni skömmu fyrir klukkan sjö í morgun. Reyndist ökumaðurinn vera undir áhrifum fíkniefna auk þess sem hann hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Þá er farþegi í bifreiðinni grunaður um vörslu fíkniefna.

Um fimm í nótt stöðvaði lögreglan bifreið í Breiðholti en ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert