„Frá víkingum til súrs hákarls – Tíu ástæður fyrir því að Íslendingar eru svona sterkir“ er fyrirsögn greinar þýska vefmiðilsins Kölner Stadt-Anzieger þar sem Þjóðverjarnir reyna að gera sér í hugarlund ástæður þess að Íslendingar séu svo sterkir.
Með greininni reyna þeir eflaust að svara vangaveltum fjölmargra um það hvernig standi á því að íslenska karlalandsliðinu í fótbolta hafi tekist að komast á HM og þar að auki gera jafntefli við Argentínu í sínum fyrsta leik.
Ástæðurnar tíu eru eftirfarandi samkvæmt Þjóðverjunum:
- Þegar forfeður Íslendinga, víkingarnir, sigldu frá Noregi yfir ólgusjó til Íslands fyrir 1.000 árum var ekki í boði að gefast upp eftir fyrri hálfleik.
- Þegar þú þarft reglulega að verjast ísbjörnum sem koma til landsins með ísjökum frá Grænlandi er lítið mál að takast á við Portúgala.
- Að taka lýsi á hverjum morgni er ógeðslegt – en það virkar.
- McDonald´s og Burger King mistókst að halda uppi skyndibitakeðjum á eyjunni – skyndibiti á ekki séns gegn langlífa þjóðarréttinum, súrum hákarli.
- Allir Íslendingar eru skyldir og þeir hafa hæstu fæðingartíðni í Evrópu (2.0 börn á konu) – blóð er þykkara en vatn.
- Hver sá sem vex úr grasi í landi þar sem nánast engin tré vaxa vegna hvassviðris er sterkari en tré.
- Þeir sem geta grillað pylsurnar sínar yfir glóandi hrauni hljóta að vera alvöru menn.
- Framburður nafna sem restin af heiminum mistekst að bera fram („Eyjafjallajökull“) æfir öndun og samhæfingu.
- Og við tölum nú ekki um ósýnilega álfaherinn.
- Á veturna er ekki bjart nema í þrjár klukkustundir á dag – í myrkrinu þarftu að takast á við andstæðinginn eins og Jedi-riddari.
Það er ekkert mál að takast á við Portúgala á borð við Ronaldo þegar þú ert vanur að glíma við ísbirni. Slíkt hið sama hlýtur að gilda um Argentínumenn.
AFP