Bílar sem lentu í árekstri í Mosfellsdal í gær, með þeim afleiðingum að farþegi í öðrum þeirra lést, voru báðir á leið í vesturátt, þ.e. á leið í átt að Mosfellsbæ.
Áreksturinn varð til móts við afleggjarann að Æsustöðum um klukkan 16 er annar bíllinn var að taka fram úr bílum á Þingvallaveginum. Bílstjóri þess bíls var einn á ferð en sá sem lést var farþegi í bíl sem hann var að taka fram úr.
Við áreksturinn kastaðist annar bíllinn langt út fyrir veg og ofan í skurð. Mikill viðbúnaður var á vettvangi og var Þingvallavegur lokaður í um tvo tíma vegna slyssins.
Bílstjórar beggja bílanna voru fluttir slasaðir á slysadeild Landspítalans. Allt fólkið er íslenskt.
Rannsókn á tildrögum slyssins er á frumstigi og mun hún væntanlega standa í einhverja daga, að sögn Valgarðs Valgarðssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir m.a. til rannsóknar hvort þriðji bílinn hafi lent í árekstrinum með einhverjum hætti.