Vegagerðin mun á næstunni banna framúrakstur á hættulegum kafla Þingvallavegar í Mosfellsdal. Þetta segir Jónas Snæbjörnsson, starfandi forstjóri Vegagerðarinnar.
„Það verður yfirfarin þarna miðlína þannig framúrakstur verði bannaður á þessu svæði, þ.e.a.s á leiðinni niður í dalinn. Síðan höfum við líka á undanförnum misserum fjölgað skiltum með hámarkshraða og yfirborðsmerkingum,“ segir Jónas.
Íbúar í Mosfellsdal hafa gert alvarlegar athugasemdir við vegaöryggi á Þingvallavegi, einkum á vegarkafla sem þar sem nokkur fjöldi afleggjara að bæjum liggur þétt saman. Kona lést í alvarlegu bílslysi á kaflanum á laugardag, en slysið varð við framúrakstur.
„Þetta verður þessi kafli þar sem farið er framhjá öllum þessum afleggjurum. Þar munum við mála heila línu,“ segir Jónas. „Þeir liggja óþægilega þétt á þessum kafla. Í samstarfi við sveitarstjórn höfum við svo unnið að deiliskipulagi á svæðinu þar sem gert er ráð fyrir tveimur til þremur hringtorgum á veginum þannig það verði ekki þessar aukatengingar inn á veginn. Þetta er aftur á móti eitthvað sem hægt er að gera strax,“ segir hann.
Deiliskipulagið verður auglýst af fulltrúum sveitarfélagsins á næstu dögum að sögn Jónasar. „Síðan færi það eftir því hvernig samgönguáætlun verður afgreidd í haust, hvaða fjármuni við fengjum til að gera fyrsta hringtorgið. Þetta svæði er ofarlega í forgangi og búið að vera mikið í umræðunni. Deiliskipulagsvinnan hófst fyrir um þremur árum og er loksins að ljúka núna. Það eru samt mörg önnur svæði í forgangi, eins og það heitir, t.d. á Kjalarnesi,“ segir Jónas.