Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að Sigurður Kristinsson skuli sæta farbanni til 6. september.
Héraðsdómur úrskurðaði um farbannið 9. ágúst og var dóminum áfrýjað til Landsréttar.
Sigurður hefur verið í farbanni frá 20. apríl. Hann er grunaður um að vera viðriðinn innflutning á 5 kílóum af amfetamíni til landsins.
Hann var handtekinn þegar hann kom til landsins frá Spáni í lok janúar en málaferli standa yfir vegna ákæru um meiriháttar skattalagabrot.