Katrín biður fyrrverandi sakborninga afsökunar

Katrín biðst afsökunar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.
Katrín biðst afsökunar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands beðið fyrrverandi sakborninga, aðstandendur þeirra og aðra sem hafa átt um sárt að binda vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins, afsökunar á því ranglæti sem þeir hafa mátt þola.

Tilefni yfirlýsingarinnar er nýfallinn sýknudómur Hæstaréttar í málum allra dómfelldu í endurupptökumáli í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu.

Dómurinn féll í gær en hann var ræddur á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Í tilkynningu segir að ríkisstjórnin fagni málalyktum í einu umdeildasta sakamáli Íslandssögunnar.

„Fyrir hönd ríkisstjórnarinnar bið ég ykkur afsökunar á því ranglæti sem þið hafið mátt þola,“ segir í yfirlýsingu Katrínar. 

mbl.is/Hari
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka