Orlando knúði fram oddaleik – Dallas komst áfram

Luka Doncic átti flottan leik í nótt.
Luka Doncic átti flottan leik í nótt. AFP/Ron Jenkins

Orlando Magic vann, 103:96, sigur á Cleveland Cavaliers og liðin mætast því í oddaleik á morgun. Sigurvegari leiksins fær sæti í undanúrslitum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta austan megin.

Donovan Mitchell átti frábæran leik fyrir Cleveland og skoraði 50 stig en það dugði ekki til og liðin mætast í sjöunda sinn á klukkan 17.00 að íslenskum tíma á sunnudaginn.

Dallas Mavericks sló LA Clippers út í Vesturdeildinni, 4:2, og mætir Oklahoma City Thunder í undanúrslitum.

Luka Doncic var atkvæðamestur fyrir Dallas en hann skoraði 28 stig, tók sjö fráköst og gaf 13 stoðsendingar.

James Harden var svo atkvæðamestur fyrir LA Clippers en hann skoraði 16 stig, tók sjö fráköst og gaf 13 stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert