Landsréttur hafnar kröfu Glitnis HoldCo

Landsréttur hafnaði kröfu Glitnis Holdco um bann við fréttaflutningi sem …
Landsréttur hafnaði kröfu Glitnis Holdco um bann við fréttaflutningi sem unnin væri úr gögnum innan úr Glitni.

Landsréttur hafnaði í dag kröfu Glitnis HoldCo um að staðfesta lögbann sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu hafði sett á umfjöllun fréttamiðilsins Stundarinnar sem byggð er á gögnum frá Glitni banka. Staðfesti Landsréttur þar með úrskurð héraðsdóms sem hafði einnig hafnað að staðfesta lögbannið. Greint er frá niðurstöðunni á vef Rúv.

Þrota­bú Glitn­is fór fram á lög­bann á frétta­flutn­ing Stund­ar­inn­ar og Reykja­vík Media sem byggði á gögn­um inn­an úr fallna bank­an­um sem fjöl­miðill­inn hafði und­ir hönd­um. Samþykkti sýslumaður­inn í Reykja­vík beiðni þrota­bús­ins 16. októ­ber í fyrra.

Rök­semd­ir Glitn­is HoldCo fyr­ir því að lög­bannið verði staðfest eru þær að fjöl­miðlarn­ir hafi lýst því yfir að ekki væri búið að birta all­ar frétt­ir úr gögn­un­um sem þeir hefðu viljað þegar lög­bannið var sett á. Þá fari birt­ing gagn­anna gegn ákvæðum laga um per­sónu­vernd og meðferð per­sónu­upp­lýs­inga og frek­ari birt­ing geti leitt til mögu­legr­ar skaðabóta­skyldu fé­lags­ins.

Stutt var til alþing­is­kosn­inga er sýslumaður staðfesti lög­banns­kröf­una, en um­fjöll­un Stund­ar­inn­ar og Reykja­vík Media hafði að miklu leyti snú­ist um viðskipti Bjarna Bene­dikts­son­ar, for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins, við Glitni í aðdrag­anda hruns ís­lenska fjár­mála­kerf­is­ins haustið 2008.

Kærðu Stund­in og Reykja­vík Media úr­sk­urð sýslu­manns. Héraðsdómur hafnaði kröfu Glitnis, en Glitnir kærði þá niðurstöðu til Landsréttar. Þar var málið tekið fyrir nýlega, en eins og fyrr segir var niðurstaða þess að Landsréttur hafnaði kröfunni, líkt og héraðsdómur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert