Skýrslu skilað um eignarhald á bújörðum

Heyskapur í Skagafirði.
Heyskapur í Skagafirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Starfshópur um endurskoðun eignarhalds á bújörðum, sem var skipaður af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í júní 2017, hefur skilað skýrslu þar sem lagðar eru til breytingar á lögum í því skyni að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Í framhaldinu hyggst forsætisráðherra skipa starfshóp um endurskoðun laga og reglna er varða eignarhald á landi og fasteignum hér á landi í samræmi við samþykkt ríkisstjórnar Íslands fyrr í dag.

Meginmarkmið endurskoðunarinnar verður að meta lögmæti mismunandi leiða til að setja almennar takmarkanir á stærð landareigna og/eða fjölda fasteigna sem einn og sami aðili, sem og tengdir aðilar, geta haft afnotarétt yfir.

Jafnframt verður það hlutverk starfshópsins að skoða mögulegar leiðir til að sporna gegn því að land í landbúnaðarafnotum sé tekið til annarra nota og tryggja ef ekki telst grundvöllur fyrir áframhaldandi landbúnaðarafnotum að búseta á jörð haldist enda þótt landbúnaðarafnot leggist af í því skyni að sporna gegn íbúafækkun og viðhalda byggð á viðkomandi svæði, að því er segir í tilkynningunni.

Starfshópurinn verður skipaður fulltrúum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, dómsmálaráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra auk fulltrúa forsætisráðherra sem mun stýra vinnu hópsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert