Maðurinn, sem er grunaður um að hafa tekið skútuna Inook ófrjálsri hendi í Ísafjarðarhöfn aðfaranótt sunnudags, er erlendur. Yfirheyrslur yfir manninum standa nú yfir að sögn Hlyns Hafbergs Snorrasonar, yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Vestfjörðum.
Hann gat ekki veitt nánari upplýsingar um stöðu rannsóknarinnar að svo stöddu, en hann segir að allir angar málsins séu rannsakaðir, til að mynda hvort fleiri hafi verið að verki en maðurinn var einn um borð í skútunni þegar henni var siglt til hafnar í gærkvöldi.
Lögreglan á Vestfjörðum óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar um tvöleytið í gær sem fann skútuna fljótlega. Í kjölfarið var varðskipið Þór sent á vettvang til að sigla í veg fyrir hana og fylgja henni til hafnar á Rifi á Snæfellsnesi. Skipstjóri skútunnar var handtekinn við komuna þangað um klukkan níu í gærkvöldi.
Heimildamaður Morgunblaðsins á Ísafirði segir í samtali við blaðið í dag að þjófnaðurinn á skútunni hafi verið vel skipulagður og krafðist aðkomu eins eða fleiri manna sem kunnu til verka. Skútan er um þrjátíu til fjörutíu fet að stærð og erfitt var að framkvæma þjófnaðinn þar sem skútan Inook var bundin við tvær aðrar skútur aftast í höfninni á Ísafirði og fyrir framan þær hafi þrjár aðrar skútur legið bundnar saman.
Eigandi skútunnar er franskur og á vef RÚV er haft eftir Torfa Einarssyni, sem hefur árum saman litið eftir skútum sem geymdar eru á Ísafirði, að hann hafi látið eigandann vita í gær. Eigandanum var nokkuð brugðið eins og gefur að skilja. Skútan er splunkuný og til stóð að geyma hana á Ísafirði í vetur. Aðeins eru nokkrir dagar síðan eigandi skútunnar var staddur á Ísafirði.