Reisa nýjan búsetukjarna fyrir fatlaða

Frá undirritun samnings Hafnafjarðarbæjar og Arnarhvols.
Frá undirritun samnings Hafnafjarðarbæjar og Arnarhvols. Ljósmynd/Aðsend

Hafnarfjarðarbær hefur gengið til samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvol ehf. um byggingu á 6 íbúða búsetukjarna ásamt sameiginlegu rými. Framkvæmdir hefjast strax á næstu dögum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu og eru verklok áætluð í mars 2020.

Hafnarfjarðarbær undirritaði samninginn fyrir hönd íbúðafélagsins Arnarhrauns 50 hses., en sérbýlin eru öll hönnuð samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar, hönnun fyrir alla – aðgengi fyrir alla. Í því felst að hanna góðar lausnir með jafnrétti og vellíðan í fyrirrúmi, en verktaki mun skila af sér fullbúnu húsnæði að utan sem innan.

Tillaga Arnarhvols byggir á samstarfi við Svövu Jónsdóttur arkitekt og er búsetukjarninn liður í áætlun sveitarfélagsins um fjölgun heimila fyrir fatlað fólk. „Framkvæmdir eru loks að hefjast við nýjan búsetukjarna og óhætt að segja að langþráðum áfanga sé náð. Það er ánægjulegt að hugsa til þess að innan 18 mánaða muni ný og falleg heimili bíða nýrra íbúa sem þurfa svo sannarlega á þeim að halda,“ er haft eftir Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar, í tilkynningunni.

Til stendur að byggja annan nýjan búsetukjarna við  Öldugötu og er útboð hvað það varðar nú í auglýsingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert