Konan sem lést í brunanum á Kirkjuvegi á Selfossi í gær hét Kristrún Sæbjörnsdóttir. Hún var fædd 1. október 1971 og var búsett í Reykjavík. Hún lætur eftir sig þrjá syni. Kristrún var gestkomandi í húsinu.
Karlmaðurinn sem einnig lést hét Guðmundur Bárðarson. Hann var fæddur 29. nóvember 1969 búsettur á Selfossi, ókvæntur og barnlaus. Hann var einnig gestkomandi í húsinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Aðstandendur færa viðbragðsaðilum sérstakar þakkir fyrir störf þeirra á vettvangi.