Stór innviðaverkefni í Árneshreppi þola enga bið. Verði ekkert að gert gæti byggðin lagst af og þar með væru „varanlega glötuð mikil verðmæti sem felast í menningu og mannlífi í þessu sérstæða og afar fallega byggðarlagi“.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í ákalli stjórnar verkefnisins Áfram Árneshreppur til ríkisstjórnar Íslands. Var bréf með tillögum að brýnum úrbótum sent Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, fyrir helgi.
Íbúar Árneshrepps hafa um árabil búið við skerta þjónustu á vegum á veturna. „Íbúum hefur fækkað mjög síðustu ár og má ekki síst rekja það til þeirrar staðreyndar að ungt fólk sættir sig ekki við þá algeru innilokun sem verulega skert vetrarþjónusta hefur í för með sér,“ segir í bréfi verkefnastjórnarinnar. Fram kemur að íbúarnir hafi um skeið bundið miklar vonir við aðgerðir til úrbóta, samanber ályktun þingsins 15. mars 2003 „um aðgerðir til verndunar búsetu og menningarlandslags í Árneshreppi“. Því miður hafi lítið sem ekkert orðið úr efndum á grundvelli hennar.
Unnið hefur verið að verkefninu Áfram Árneshreppur sem lið í verkefnum Byggðastofnunar og samstarfsaðila, Brothættum byggðum, frá því í fyrra. Mörg markmið í verkefnisáætlun snúa að samstarfi og framtaki heimamanna en þau verkefni sem hvað brýnust eru fyrir viðgang byggðarinnar eru þó stóru innviðaverkefnin sem eru á valdi ríkis og stofnana þess, segir í bréfinu. „Það þolir að mati verkefnisstjórnar enga bið að þessi markmið verkefnisins hljóti athygli og stuðning ríkisins.“
Í bréfinu er bent á að verslun í Norðurfirði hafi verið lokað síðsumars. „Ekki þarf að orðlengja að þessi staða er illþolandi fyrir íbúana og fyrirsjáanlegt er að enga vöru verður að hafa nema með því að panta sendingar með flugi.“ Hins vegar sé verðlagning á flugsendingum með þeim hætti að ekki verði við unað.
Tekið er fram í bréfinu að í síðustu viku hafi verið tilkynnt að verslun í Norðurfirði hlyti 2,4 milljóna króna styrk frá ráðuneytinu árlega í þrjú ár sem verkefnastjórnin þakkar vel fyrir.
Verkefnastjórnin setur í bréfi sínu fram fimm tillögur sem hún óskar eftir að fái fram að ganga fyrir atbeina ríkisstjórnarinnar. Í fyrsta lagi að takmarkanir á vetrarþjónustu á vegum í Árneshreppi á tímabilinu janúar til mars verði afnumdar frá og með 1. janúar 2019.
Í rökstuðningi kemur fram að það sé mjög íþyngjandi fyrir íbúa Árneshrepps að búa við svokallaða G-reglu Vegagerðarinnar. Hún felur í sér að ekkert er mokað frá 5. janúar til 20. mars ár hvert. „Í tímabundnum sparnaðaraðgerðum eftir hrun setti þáverandi ríkisstjórn á kröfu um 10% niðurskurð til ríkisstofnana, en Vegagerðin ákvað að skera niður um 50% til þjónustu í Árneshreppi. Þessi aðgerð átti að vera tímabundin en nú hafa liðið 10 ár og verulegur efnahagsbati hefur náðst. Því teljum við að hér megi auðveldlega bæta í og taka upp mokstur tvisvar í viku eins og fyrr.“
Í öðru lagi leggur verkefnastjórnin til að verulegri niðurgreiðslu á flugmiðum til og frá Gjögri verði þegar í stað komið á. Verði tafir á framkvæmd tillögu um breytta vetrarþjónustu verði niðurgreiðslur ekki lægri en 80%. „Það er mikið óréttlæti fólgið í því að íbúar í einu fámennasta og afskekktasta byggðarlagi landsins eigi þann eina kost að greiða tugi þúsunda fyrir flugmiða til að komast til og frá byggðarlaginu,“ segir í rökstuðningi.
Í þriðja lagi er lagt til að verulegri niðurgreiðslu á flutningsgjöldum vöru með flugi til og frá Gjögri verði þegar í stað komið á. „Það eru 105 km frá Norðurfirði í næstu verslun og jafnvel þó að vetrarþjónustu verði komið í eðlilegt horf er það löng leið á vondum malarvegum þegar um dagleg innkaup vöru til heimila er að ræða.“
Í fjórða lagi leggur verkefnastjórnin til að vegagerð yfir Veiðileysuháls verði flýtt. Bent er á að gerð nýs heilsársvegar yfir hálsinn hafi verið á samgönguáætlun í mörg ár en stöðugt verið frestað. Er vakin athygli á því að engar deilur standi um vegstæði á Veiðileysuhálsi, „og mætti nýta fjármagn sem hefur verið ætlað í aðrar framkvæmdir í Veiðileysuháls þar til mál skýrast“.
Í fimmta og síðasta lagi er lagt til að stofnunum ríkis verði gefið svigrúm, m.a. í fjármunum, til að koma til móts við óskir íbúa Árneshrepps í helstu hagsmunamálum er varðar innviði. Má þar nefna samgöngubætur, ljósleiðara og þrífösun, auk þess sem tillit verði tekið til sérstöðu byggðarlagsins varðandi aflaheimildir og sauðfjárrækt.
„Það virðist sem núverandi farvegur brothættra byggða í gegnum stýrihóp stjórnarráðsins hafi ekki skilað tilætluðum árangri, að minnsta kosti hvað Árneshrepp varðar,“ segir í rökstuðningi verkefnastjórnarinnar. „Því miður hafa svör ríkisstofnana við erindum sveitarfélagsins í flestum tilvikum verið neikvæð, hafi þau fengist á annað borð. Því er óhjákvæmilegt að leita beint til ríkisstjórnar um stuðning í ofangreindum innviðamálum.“