Virkjað verður í Hvalá „á öðrum hraða“

Jóhann staðfestir að framkvæmdaleyfið sé fallið úr gildi en segir …
Jóhann staðfestir að framkvæmdaleyfið sé fallið úr gildi en segir að svolítið sé síðan ákveðið var að framlengja ekki þetta tiltekna leyfi. mbl.is/RAX

„Þetta er ekki framkvæmdaleyfi fyrir sjálfa Hvalárvirkjun heldur framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknirnar og snerist fyrst og fremst að vegagerð upp Ófeigsfjarðarheiðina,“ segir Jóhann Snorri Sigurbergsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá HS Orku, um framkvæmdaleyfi Vesturverks vegna Hvalárvirkjunar sem féll úr gildi síðastliðinn föstudag, 12. júní.

Jóhann staðfestir að framkvæmdaleyfið sé fallið úr gildi en segir að svolítið sé síðan ákveðið var að framlengja ekki þetta tiltekna leyfi.

„Ástæðan er sú að þetta verður tekið inn í stóra framkvæmdaleyfið þegar og ef það fer af stað. Þess vegna var þetta látið falla úr gildi. Við hefðum getað haldið því með því að taka eina gröfu og grafa eina holu,“ segir Jóhann, en samkvæmt 2. mgr. 15. gr. skipu­lagslaga telst framkvæmd hafin þegar hreyft hefur verið við yfirborði jarðvegs á framkvæmdastað.

„Þetta er engin breyting og er ótengt því að við ákváðum að fresta framkvæmdunum, eða draga úr. Rannsóknirnar halda áfram, en það var ákveðið að gera þetta á aðeins öðrum hraða en hafði verið lagt upp með upphaflega.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert