Möguleiki á opnun Bláfjalla í næstu viku

Starfsfólk Bláfjalla hefur troðið snjóinn og myndað rastir í brekkurnar …
Starfsfólk Bláfjalla hefur troðið snjóinn og myndað rastir í brekkurnar í tilraun til þess að festa hann. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við fengum mikið af snjó í gær sem við unnum úr í nótt þar sem hægt var,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum, sem er bjartsýnn á opnun skíðasvæðisins í næstu viku.

Mikill púðursnjór er á svæðinu, en starfsfólk Bláfjalla hefur troðið snjóinn og myndað rastir í brekkurnar í tilraun til þess að festa hann. Þá á einnig að hvessa í kvöld sem gæti bætt stöðuna talsvert, að sögn Einars.

„Við erum að vinna að því að safna snjó og svo á að snjóa aftur um helgina. Þá er vonandi að við getum opnað í næstu viku,“ segir Einar.

Ljósmyndari mbl.is fór á staðinn í dag og tók nokkrar myndir af undirbúningi í Bláfjöllum.

Þessi skíðakappi lét ekki segjast þótt lyftur væru lokaðar.
Þessi skíðakappi lét ekki segjast þótt lyftur væru lokaðar. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert