Borgarstjóri sendir samúðarkveðju

Fjöldi manns hefur minnst Pawel Adamowicz, borgarstjóra Gdansk, sem var …
Fjöldi manns hefur minnst Pawel Adamowicz, borgarstjóra Gdansk, sem var myrtur á sunnudag. AFP

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sent samúðarkveðju til Gdansk vegna morðsins á borgarstjóranum Pawel Adamowicz.

Ada­mowicz lést í gær af völd­um sára sem hann fékk í hnífstungu­árás á sunnu­dag. Mik­il sorg rík­ir í Póllandi í kjöl­far dauða hans og hafa þúsund­ir komið sam­an, bæði í Gdansk og Var­sjá, til að minn­ast hans.

Í kveðjunni segir Dagur glæpinn algjörlega óskiljanlegan og að borgir heimsins verði að standa sameinaðar gegn slíkum voðaverkum.

Kveðjan í heild sinni er svohljóðandi:

Kæri varaborgarstjóri Aleksandra Dulkiewicz,

Fyrir hönd Reykvíkinga vil ég votta mína dýpstu samúð vegna hins hörmulega atburðar sem átti sér stað í Gdansk síðdegis á sunnudag. Glæpurinn er algjörlega óskiljanlegur og hugur okkar er hjá fjölskyldu borgarstjórans Adamowicz, íbúum Gdansk og öllum sem syrgja hann. Borgir heimsins verða að standa sameinaðar gegn slíkum voðaverkum.

Dagur B. Eggertsson
Borgarstjóri í Reykjavík

Á pólsku:

Szanowna Pani Wiceprezydent Aleksandra Dulkiewicz,

Chciałbym złożyć moje najgłębsze wyrazy współczucia w związku z przerażającym atakiem, jaki miał miejsce niedzielnego wieczoru w Gdańsku. Wciąż nie możemy do końca zrozumieć powodów tej zbrodni, a nasze serca są z rodziną Pana Prezydenta Adamowicza, mieszkańcami Gdańska i wszystkimi dla których to zdarzenie miało znaczenie. Wszystkie miasta na świecie muszą zjednoczyć się i stać razem przeciwko takim przerażającym aktom przemocy.

Dagur B. Eggertsson
Burmistrz Miasta Reykjavik

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert