Aðstandendur konu sem fórst í eldsvoðanum við Kirkjuveg á Selfossi í fyrra krefja karlmann sem er ákærður fyrir að hafa banað henni og karlmanni um 25 milljónir króna í bætur.
RÚV greinir frá þessu. Ákæra á hendur manningum var þingfest í morgun í Héraðsdómi Suðurlands.
Í brunanum lést par og var maðurinn handtekinn á vettvangi. Var hann húsráðandi, en kona sem var gestkomandi var einnig handtekin á staðnum. Voru þau bæði úrskurðuð í gæsluvarðhald, en Landsréttur felldi úr gildi gæsluvarðhald yfir konunni. Maðurinn hefur hins vegar sætt varðhaldi frá því hann var handtekinn.