Fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar, sem ekkert hefur spurst til síðan í Dublin á laugardagsmorgun, er á leið til Írlands til að aðstoða lögreglu við leit að honum.
Frá þessu greinir fjölskyldan í tilkynningu.
Jón, sem er 41 árs, sást síðast í Whitehall um ellefuleytið á laugardagsmorgun. Þá var hann klæddur í svartan jakka.
Allir þeir sem hafa séð Jón eða geta veitt aðstoð við leitina eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.