Þriðji dagur leitarinnar að Jóni Þresti

Jón Þröstur Jónsson fór til Dublin til að taka þátt …
Jón Þröstur Jónsson fór til Dublin til að taka þátt í pókermóti í byrj­un fe­brú­ar árið 2019. Ljósmynd/Aðsend

Tæknideild írsku lögreglunnar ásamt réttarmeinafræðingum munu í dag rannsaka svæðið sem girt var af í gær vegna leitarinnar að Jóni Þresti Jónssyni.

Fimm ár eru liðin síðan hann hvarf sporlaust í Dublin, höfuðborg Írlands.

Jón Þröstur yfirgaf Bonnington-hótelið þar sem hann gisti klukkan 11 þann 9. febrúar 2019. Síðast sást hann á gangi fram hjá inngangi Highfield-sjúkrahússins í borginni.

Svæðið sem girt var af í gær er í almenningsgarðinum Santry Demense, sem er um 3,5 kílómetrum frá staðnum þar sem síðast sást til Jóns Þrastar, að því er RTÉ greindi frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert