Einstaklingur með smitandi mislinga sem var í flugi Icelandair frá London til Keflavíkur og síðan frá Reykjavík til Egilsstaða kom frá Filippsseyjum. Þetta kemur fram í frétt á vef embættis landlæknis en líkt og greint var frá fyrr í dag hefur mislingasmit hjá einum farþega Icelandair-vélarinnar verið staðfest. Sami einstaklingur fór svo í flug með Air Iceland Connect daginn eftir.
„Icelandair og Air Iceland Connect, í samvinnu við sóttvarnalækni, hafa sent farþegum ofangreindra véla nauðsynlegar upplýsingar og leiðbeiningar,“ segir í tilkynningu frá embætti landlæknis. Einnig hefur verið haft samband við þá sem hann hefur umgengst þessa daga eftir komuna til landsins og upplýsingum miðlað til heilbrigðisstofnana með áherslu á starfsmenn heilsugæslunnar.
Í þessum leiðbeiningum eru farþegar hvattir til að leita til sinna lækna fram til 7. mars nk. finni þeir fyrir einkennum sem geta bent til mislinga, sérstaklega ef þeir eru óbólusettir.
Flugin sem um ræðir eru flug FI455 með Icelandair 14. febrúar og flug NY356 með Air Iceland Connect 15. febrúar. Smitið hefur áhrif á yfir 200 manns en 147 farþegar voru um borð í vél Icelandair og 70 í vél Air Iceland Connect.
Í tilkynningu landlæknis segir að einstaklingur sé smitandi einungis eftir að einkenni koma fram og er smitandi í 7−10 daga. Einkenni mislinga koma yfirleitt fram 10–14 dögum eftir smit en að hámarki geta liðið 3 vikur.
Sóttvarnarlæknir telur litlar líkur á útbreiddum faraldri hér á landi sé gætt að og farið eftir ofangreindum leiðbeiningum enda er almenningur á Íslandi ágætlega bólusettur gegn mislingum.