Sigurður Kristinsson var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir aðild að Skáksambandsmálinu svokallaða. Auk hans voru tveir til viðbótar dæmdir til fangelsisvistar.
Frá þessu er greint á vef Fréttablaðsins. Hákorn Örn Bergmann hlaut tólf mánaða dóm og Jóhann Axel Viðarsson var dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af sex mánuði skilorðsbundna.
Mennirnir þrír voru ákærðir fyrir smygl á fimm kílóum af amfetamíni, sem falin voru í skákmunum og send með pakka sem stílaður var á Skáksamband Íslands.
Sigurður kaus að gefa ekki skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins, en einn sakborninganna sagðist ekki hafa vitað að í pakkanum hefðu verið fíkniefni.
Hann hefði talið peninga vera í pakkanum. Það hefðu því runnið á hann tvær grímur þegar Sigurður hefði sagt honum að það væri ekki sniðugt að hann tæki á móti pakkanum sjálfur.
Þriðji maðurinn játaði að hafa sótt pakkann fyrir utan húsnæði Skáksambands Íslands. Sá segir þó ekki heldur hafa haft hugmynd um að hann innihéldi fíkniefni, heldur hefði sig grunað að þetta væru sterar.
Mennirnir hafa fjórar vikur til að ákveða hvort niðurstöðunni verði áfrýjað til Landsréttar.