Forgangshópar hvattir í bólusetningu

Blásið hefur verið til bólusetningarátaks á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu …
Blásið hefur verið til bólusetningarátaks á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu og eru óbólusettir á aldrinum 6 mánaða til 49 ára hvattir til að mæta sem fyrst í bólusetningu. mbl.is/Hari

Ákveðið hefur verið að grípa til ýtrustu varúðarráðstafana og bjóða upp á bólusetningu gegn mislingum á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu eftir að grunur vaknaði í gærkvöldi um fimmta mislingatilfellið, samkvæmt tilkynningu frá sóttvarnalækni. Þar segir að sýni frá viðkomandi hafi verið sent til rannsóknar og að niðurstöðu sé að vænta síðdegis.

„Hinn sýkti komst í snertingu við þann aðila sem kom með flugi til Egilsstaða þann 15. febrúar og greindist síðar með mislinga,“ segir í tilkynningunni.

Bólusetningarátak á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu

Á fundi sóttvarnalæknis í morgun með Heilbrigðisstofnun Austurlands  (HSA),  Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) og Landspítala (LSH)  var tekin  ákvörðun um að hvetja eftirtalda forgangshópa á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu til að þiggja bólusetningu við mislingum.

Forgangshópar eru:

  1. Allir sem eru óbólusettir og  fæddir á bilinu 1. janúar  1970 – 1. september 2018 (6 mánaða – 49 ára). 
  2. Þeir einstaklingar sem útsettir hafa verið fyrir mislingasmiti ásamt þeirra nánasta umgangshópi.

Þessir hópar eru hvattir til að mæta í bólusetningu sem fyrst, þ.e. frá og með deginum í dag.

Boðið verður upp á opnar bólusetningar strax um helgina á Austurlandi og á höfuðborgarsvæðinu fyrir þessa hópa og eru staðsetningar auglýstar á heimasíðum Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins

Hverjir þurfa ekki bólusetningu?

Þeir einstaklingar sem hafa verið bólusettir eða hafa fengið mislinga þurfa ekki frekari bólusetningu.

Einstaklingar sem fæddir eru fyrir 1970 hafa langflestir fengið mislinga og eru því ekki í forgangi í bólusetningu.

Einstaklingar sem eru með sögu um eina bólusetningu eru ekki í forgangi. Hægt verður að bjóða þeim bólusetningu síðar. Yngri en sex mánaða hafa ekki gagn af bólusetningu.

Nánari upplýsingar

Almenningi er bent á netspjall heilsugæslunnar www.heilsuvera.is og einnig er upplýsingar að finna á vef Embættis landlæknis og heilsugæslunnar.

Áfram eru veittar upplýsingar vegna mislinga í síma 1700.

Sóttvarnalæknir hefur upplýst umdæmis- og svæðislækna sóttvarna um allt land um stöðuna og eru þeir í viðbragðsstöðu að hefja bólusetningarátak ef upp koma mislingar í öðrum landshlutum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert