Flogið til Alicante þrisvar í viku

Flogið er með Icelandair.
Flogið er með Icelandair. mbl.is/Eggert

Ferðaskrifstofan VITA hefur sitt þriðja leiguflug í viku til Alicante á Spáni. Flogið er með Icelandair á þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá VITA. Þar segir enn fremur, að salan fyrir næsta sumar hafi farið fram úr væntingum og margar brottfarir séu nú þegar uppseldar.

Ferðaskrifstofan VITA er dótturfélag Icelandair Group. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert