Héraðssaksóknari hefur óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir karlmanni sem ákærður er fyrir manndráp á Selfossi í október 2018. Gæsluvarðhald yfir manninum á að renna út í dag. Úrskurður Landsréttar um fjögurra vikna gæsluvarðhald liggur fyrir eftir hádegi í dag.
„Við erum að bíða eftir síðasta matinu og það ætti að koma í dag eða á morgun. Þegar það er komið verður ákveðin dagsetning á aðalmeðferð,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir héraðssaksóknari.
Spurð hvort hún telji að aðalmeðferð í málinu verði innan fjögurra vikna telur hún það líklegt því alltaf er reynt að flýta málum þegar menn sitja í gæsluvarðhaldi. Hún getur þó ekki fullyrt um það þar sem það er í höndum dómara.
Gefin var út ákæra í málinu í lok janúar og samkvæmt henni er manninum gefin að sök brenna og manndráp með því að hafa 31. október í fyrra lagt eld að pappakassa og gardínum í stofu á neðri hæð íbúðarhúss og valdið þannig eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu, vitandi af karlmanni og konu sem voru gestkomandi í svefnherbergi á efri hæð hússins er eldurinn magnaðist upp. Hafði eldurinn breiðst út um húsið þegar slökkvistarf hófst.
Afleiðingar þess voru að parið lést af völdum kolmónoxíðeitrunar vegna innöndunar á reyk og húsið gjöreyðilagðist. Í ákæru segir enn fremur að ákærði hafi enga tilraun gert til að aðvara fólkið um eldinn eða koma því til bjargar áður en hann yfirgaf húsið.