Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að niðurstaða Samgöngustofu að svipta Procar ekki starfsleyfi sendi skýr skilaboð: „Það er í lagi að svindla á Íslandi.“ Þetta kemur fram í færslu Jóhannesar á Facebook.
Segir hann niðurstöðuna algjörlega óásættanlega og sendi ferleg skilaboð um rekstrarumhverfi bílaleiga á Íslandi og veiki traust á eftirlitsstofnuninni. Segir hann bílaleigu strax hafa kallað eftir skýrum afleiðingum og málið kom upp. „Hér er því orðið morgunljóst að fyrirtækin eru mun ábyrgari en eftirlitsstofnunin sem þau falla undir,“ segir Jóhannes.
Í gær var greint frá því að tillögur fyrirtækisins að úrbótum hefðu verið taldar fullnægjandi að mati Samgöngustofu. Þórhildur Elín Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu, sagði í samtali við mbl.is að komið hafi í ljós við úrvinnslu málsins að lagaramminn hafi ekki verið „eins víðtækur og ætla mætti“ en segir að við vinnsluna á máli Procar hafi regluramminn verið „nýttur eins og hægt er.“