Niðurtalningarljós tekin í notkun

Ný gangbrautaljós hafa verið tekin í notkun við gatnamót Lækjargötu …
Ný gangbrautaljós hafa verið tekin í notkun við gatnamót Lækjargötu og Bankastrætis. mbl.is/Árni Sæberg

Reykjavíkurborg hefur tekið í notkun nýja gerð umferðarljósa við gangbraut í miðborginni, nánar tiltekið við gatnamót Bankastrætis og Lækjargötu. Ljósin voru virkjuð í dag, en breytingin frá hefðbundnum gangbrautarljósum er að nýtt ljósker er nú fyrir ofan „rauða og græna kallinn“ sem telur niður.

„Þegar rauða ljósið logar er talið niður hvenær grænn kall kemur og þegar græni kallinn logar sýnir niðurtalningin sekúndur þar til sá rauði kemur á ný,“ segir í frétt á vef borgarinnar. 

Forgangur Strætó tekinn með í reikninginn

Bætt öryggi er meginástæðan fyrir uppsetningu ljósanna, en niðurtalningarljósin eru á vefnum sagðar hjálpa fólki að virða ljósin. 

„Forgangur Strætó eftir Lækjargötu hefur í för með sér  að lengd rauða gönguljóssins getur verið breytileg. Stýrikerfið nemur strætisvagna þegar þeir nálgast gatnamótin og gefur þeim svigrúm til að komast yfir gatnamótin og á meðan logar rautt á gangandi. Þegar örugg boð hafa borist  inn í kerfið um að strætisvagn sé á leið í gegn hefst niðurtalningin. Meðan ekki eru komin örugg boð logar rauða niðurtalningin og sýnir 1+ þar til öruggt er að fara í ferli til að skipa yfir í grænt,“ segir á vef Reykjavíkurborgar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert