Fíkniefnin sem tollverðir fundu í fólksbíl í Norrænu á fimmtudag voru alls 45 kíló. Er um eitt mesta magn fíkniefna sem lagt hefur verið hald á hér á landi að ræða.
Samkvæmt heimildum mbl.is voru fíkniefnin sem fundust í bílnum bæði amfetamín og kókaín og var það fíkniefnahundurinn á Egilstöðum sem rann á lyktina.
Hefur fólksbílinn nú verið tekinn í sundur til frekari rannsókna. Lögreglan á Austurlandi hefur ekki fengist til að staðfesta þessar upplýsingar.
Greint var frá því fyrr í dag að tveir erlendir karlmenn hafi verið úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Austurlands vegna málsins.
Lögreglan á Austurlandi fer með rannsókn málsins í samvinnu við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir rannsóknina á viðkvæmu stigi og hyggst ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Mesta magn af sterkum fíkniefnum sem lagt hefur verið hald á var í Papeyjarmálinu fyrir rúmum tíu árum. Hlutu sex menn dóm fyrir að smygla til landsins 55 kílóum af amfetamíni og 9.400 e-töflum.