Smyglarar í áframhaldandi varðhald

Farþegaferjan Norræna við bryggju á Seyðisfirði.
Farþegaferjan Norræna við bryggju á Seyðisfirði. mbl.is/Þorgeir

Mennirnir tveir sem handteknir voru við komu Norrænu til Seyðisfjarðar 1. ágúst, grunaðir um að hafa flutt verulegt magn af fíkniefnum til landsins, hafa verið úrskurðaðir í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald að kröfu lögreglustjórans á Austurlandi.

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp þennan úrskurð í dag, en mennirnir voru fluttir suður skömmu eftir að þeir voru handteknir. Samkvæmt heimildum mbl.is fundust 45 kíló af sterkum fíkniefnum, kókaíni og amfetamíni, við leit í bifreið mannanna.

Lögreglan á Austurlandi segir í tilkynningu að rannsókn málsins sé mjög viðamikil, en henni miði vel. Rannsóknin fer fram í samstarfi við tollgæsluna og lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og við erlend lögreglulið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert