Smyglararnir sem handteknir voru við komuna til Seyðisfjarðar með Norrænu á fimmtudag, komu til Reykjavíkur í kvöld í fylgd lögreglumanna.
Tollverðir fundu við komu Norrænu umtalsvert magn fíkniefna í fólksbíl. Var fólksbíllinn tekinn í sundur svo næðist í efnin. Tveir erlendir karlmenn voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Austurlands vegna málsins.
Alls fundust 45 kíló af amfetamíni og kókaíni í fólksbílnum, en það var fíkniefnahundurinn frá Egilsstöðum sem rann á lyktina. Hefur mbl.is fengið þær upplýsingar að um sé að ræða verðmætasta magn fíkniefna sem lagt hefur verið hald á hér á landi frá upphafi. Þá er einnig um eitt mesta magn fíkniefna, sem lagt hefur verið hald á hér á landi, að ræða.
Lögreglan á Austurlandi fer með rannsókn málsins í samvinnu við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Hún segir rannsóknina á viðkvæmu stigi og hyggst ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Mesta magn af sterkum fíkniefnum sem lagt hefur verið hald á var í Papeyjarmálinu fyrir rúmum tíu árum. Hlutu sex menn dóm fyrir að smygla til landsins 55 kílóum af amfetamíni og 9.400 e-töflum.
Fréttin hefur verið uppfærð.