Kerskáli þrjú í álveri Rio Tinto í Straumsvík verður endurræstur í byrjun september. Nokkra mánuði getur tekið að koma skálanum að fullu í gagnið að nýju. Frá þessu var greint í hádegisfréttum RÚV.
Svokallaður ljósbogi myndaðist í kerskálanum 21. júlí og var slökkt á öllum kerjunum í kerskálanum í kjölfarið. Um þriðjungur framleiðslu álversins fer fram í skálanum en alls eru 160 ker í hverjum kerskála í álverinu.
Bjarni Már Gylfason, upplýsingafulltrúi Rio Tinto, segir í samtali við RÚV að nokkur ker verði ræst á dag og nokkrir mánuðir séu í að skálinn verði að fullu kominn í gagnið.
Rio Tinto hefur ekki viljað upplýsa hvað gerðist nákvæmlega í skálanum þegar ljósboginn myndaðist. Bjarni segir að fyrirtækið viti hvað þurfi til að koma í veg fyrir að atvikið endurtaki sig.