Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði ökumann í gærkvöldi vegna gruns um fíkniefnaakstur. Hvítt efni og kannabis fannst í bílnum sem og tveir hnífar og haglabyssuskot.
Þá fann lögregla kannabisefni í húsnæði í umdæminu þegar farið var í húsleit í gær að fenginni heimild. Í húsleit sem gerð var í fyrradag, að fenginni heimild, fannst svo umtalsvert magn af kannabisefnum.
Loks fann lögregla kannabisefni á eldhúsborði í heimahúsi, en þangað höfðu lögreglumenn verið kvaddir vegna heimilisófriðar.